Ástríður Jóna heiti ég og hef haft áhuga á skartgripagerð frá unglingsaldri.
Árið 2006 sótti ég svo silfursmíðanámskeið hjá Vífli Valgeirsyni og svo framhaldsnámskeið ári síðar. Hann hefur verið mín hægri hönd eftir að þriðja námskeiðið var svo sótt. Aðallega hef ég fengist við sérsmíði og viðgerðir.
Ég sérsmíða eftir pöntunum, hringa, eyrnalokka, armbönd og hálsmen.
Er með úrval steina t.d. Sirkoníum í ýmsum litum, Djúpalónsperlur (svartar) o.fl.
Hver gripur er einstakur.
Stuttur afgreiðslufrestur.