Sunnlenska bókakaffið

Sunnlenska bókakaffið er alhliða bókaverslun með bæði nýjar og notaðar bækur. Bókabúð okkar er opin frá mánudegi til laugardags frá klukkan 12-18. En netverslunin hér er opin 24 tíma á sólarhring sjö daga vikunnar og hér á skjánum er stærsta netbókaverslun landsins með bæði notaðar og nýjar bækur. Sendið okkur tölvupóst og spyrjist fyrir um titla sem ykkur vantar. Svörum öllum fyrirspurnum. Söluskrá Sunnlenska bókakaffisins er uppfærð einu sinni í viku. Af þeim sökum getur alltaf komið fyrir að bók sem er í skránni hafi þegar verið seld. Verslunin áskilur sér rétt til að endurgreiða ef greitt hefur verið fyrir selda bók. Sjá nánar fréttir og bókadóma okkar hér.


Allar
nýju bækurnar

 
Erum með allar nýjar bækur forlaganna. Sendið okkur línu og pantið. Seinna í haust verða allir helstu titlar komnir á netið.
 
Hagstætt verð
- fljót og góð þjónusta.
 
 
 
 
 
 
 

Hrappseyjar-
útgáfa
af Jóni á Bægisá er ein af þeim 18. aldar bókum sem við höfum til sölu. Meðal gersema má líka nefna Ræður Hjálmars á Bjargi, frá 1820, Rit Lærdómslistafélagsins, Grallari frá 1732, Misseraskiptaoffur frá 1779, Sigurhróss hugvekjur frá 1778, Gerhardshugvekjur frá 1728, Vídalínspostillur og ljóðmæli Stefáns í Vallanesi frá 1823. Sjá nánar

Brynjúlfur
á Minna-Núpi


Dulrænar smásögur Brynjúlfs Jónssonar á Minna Núpi teknar eftir skilgóðum heimildum I-II. Rv. 1955. Gott eintak

Aðeins 3000 kr. Eigum einnig Tillag til alþýðlegra fornfræða eftir sama á kr. 2600 og Íslenska sagnaþætti Brynjúlfs I-II á kr. 2700. Allt vel með farnar og fallegar bækur. 
 

 

Forvitnilegur bókakassi Guðmundar stúdents

Smárit úr bókasafni Guðmundar á Kópsvatni bárust nýlega á Sunnlenska bókakaffið og hafa vakið athygli. Smárit fyrri tíðar og bæklingar voru oft ígildi bloggfærsla samtímans og eru mörg hin mestu fágæti í dag.
Sjá meira
Áritaðar bækur - einstök gjöf
 

Í verslun okkar er úrval áritaðra bóka. Hér er listinn yfir áritaðar bækur frá 3. ágúst 2010.:
 
Álfur Utangarðs: Bóndinn í Bráðagerði: Útg 1954, kr 2600
Ármann Dalmannsson: Ljóð...
 

   

Fljótt fljótt,
sagði fuglinn

er ein af athyglisverðari bókum Thors Vilhjálmssonar. Hér er á ferðinni árituð frumútgáfa.


Sjá fleiri íslenskar skáldsögur
og fleiri áritaðar bækur.

 


 
 
 
 


 
er sjálfshjálparrit frá árinu 1929. Frábær vitnisburður um annan aldarhátt.
Verð aðeins 1900 kr. Kaupa.
Rannsóknar-skýrsla Alþingis Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna árið 2008. Skýrslan er rúmlega 2000 blaðsíður að lengd og er gefin út í níu bindum.
Verð 6000 krónur
 

Gömul tímarit

eru seld á 450 kr
óinnbundin og
550 kr innbundin
hvert eintak.
 
Skráning tímarita er ekki tæmandi, sendið fyrirspurnir á bokakaffid @sunnlenska.is
 
Við gefum afslátt séu keypt mörg tölublöð.
 
 
Jónas Hallgrímsson
allur í viðhafnarútgáfu frá 1945-1946 á 100 ára ártíð skáldsins. Tómas Guðmunds- son sá um útgáfuna fyrir bókaútgáfuna Helgafell. Tveggja binda verk og ein fallegasta útgáfa Jónasar sem komið hefur út.
Einstaklega vel með farin og glæsileg eintök, verð 25000 kr.
Sjá fleiri ljóðabækur

Er bókin ekki til hjá okkur? Sendið okkur þá póst, bokakaffid@sunnlenska.is, eða leitið hjá öðrum netbókaverslunum, ILAB, Amazon, Bókin, Dúllarinn, Tungubakki í Breiðholti, Örn í Fljótum, ríkisfyrirtækið Eymundsson - og í lokin danskir fornbókasalar. 


Nánari upplýsingar um einstakar bækur í skrám okkar má finna á Gegni, vef bókasafnanna,
Sunnlenska bókakaffið - Austurvegi 22 - 800 Selfossi - Sími: 4823079 - bokakaffid(hjá)sunnlenska.is - Skilmálar